|
„Árið 2007 hélt Verkefnastjórnunarfélag Íslands alþjóðlega ráðstefnu um verkefnastjórnun, Nordnet 2007 - Projects under risk. Efnt var til ráðstefnunnar fyrir hönd norrænu verkefna-stjórnunarfélaganna, Nordnet. Ráðstefnan var haldin dagana , 26. - 28. september á Hótel Nordica. Ráðstefnugestir voru um 180, íslenskir og erlendir. Fyrirlesara voru 27 þar af ríflega helmingur sem kom erlendis frá.
Við upphaf undirbúnings ráðstefnunnar árið 2005 var ákveðið að fá Congress Reykjavík til samstarfs við tiltölulega fámennan verkefnishóp frá félaginu. Þátttaka Congress reyndist ráðstefnunni og verkefninu öllu sérlega heilladrjúg. Verkefnishópur gat einbeitt sér að markmiði ráðstefnunnar og efnisþáttum en Congress sá raunar um allt hitt, fjármál, bókhald, skipulag, ferðatilhögun, bókanir og öll þau ótölulegu smáatriði sem tínast til við tiltölulega umfangsmikið og flókið verkefni sem alþjóðleg ráðstefna er. Starfsfólks Congress var auk þess óþrjótandi og ómentanlegur viskubrunnur um allt sem við kemur ráðstefnuhaldi og atburðastjórnun.
Síðast en ekki síst var samstarfið við starfsfólk Congress framúrskarandi gott, viðhorf þeirra, viðmót og fagmennska einstök.
Fyrir bragðið gekk ráðstefna Nordnet 2007 mjög vel. Þátttakendur, fyrirlesarar og verkefnishópur voru ánægðir með árangursríkt verkefni sem Congress Reykjavík átti mjög stóran þátt í.
Ég gef Congress Reykjavík mín bestu meðmæli.“
Guðmundur Hannesson
Forstöðumaður Ráðgjafarsviðs
Ríkiskaupa og verkefnastjóri Nordnet 2007
|