|
|
|
|
|
UMSAGNIR
|
„Congress Reykjavík hefur skipulagt Rannsóknarráðstefnu Vegagerðarinnar í fjöldamörg ár, auk þess að undirbúa fyrir okkur og sjá um fjölda stórra og smárra þinga, funda og ferðalaga með þátttöku erlendra gesta.
Nú vinnur stofan að skipulagningu stærstu ráðstefnu á sviði vegamála sem haldin hefur verið hérlendis, Via Nordica, sem verður haldin í Hörpunni í júní 2012.
Undantekningalaust eru verkefnin leyst af starfsmönnum Congress Reykjavík á fag-legan hátt og einstaklega jákvætt og persónulegt viðhorf gerir öll samskipti sérstaklega ánægjuleg.“
Hreinn Haraldsson
Vegamálastjóri
|
 |
|
|
|
„Hjartasjúkdómafélag íslenskra lækna stóð fyrir umfangsmiklu alþjóðlegu þingi í hjartalækningum, Nordic Baltic Congress of Cardiology, vorið 2009.
Við leituðum til Congress Reykjavik til aðstoðar við undirbúning og framkvæmd þingsins.
Þingið heppnaðist með eindæmum vel og öll skipulagsvinna af hálfu Congress Reykjavik var til fyrirmyndar.“
Karl Andersen og
Davíð O. Arnar
F.h.undirbúningsnefndar
Nordic Baltic Congress
of Cardiology 2009
|
 |
|
|
„Orkustofnun stóð að 5 daga framkvæmdastjórnarþingi Alþjóðaorkuráðsins í september 2009 og leituðum við til Congress með utanumhald og útfærslu þingsins.
Samstarf okkar við Congress var í alla staði til fyrirmyndar og var ráðstefnan einstaklega vel heppnuð. Fram-kvæmdaráætlun var vel unnin og tímasetningum fylgt eftir.
Sérstaklega ljúft var "ekkert stress" hugsun starfsfólks Congress, enda fagfólk hér á ferð með lausnir á öllu sem upp getur komið í kringum ráðstefnuhald.“
Inga Dóra Guðmundsdóttir
Verkefnisstjóri -
Kynningar og erlend samskipti
|
 |
|
|
|
„Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur verið í viðskiptum við Congress allt frá stofnun þess.
Ástæðan er sú að samstarf okkar hefur verið einkar ánægju- og árangursríkt.
Starfsfólkið er sérstaklega lipurt, áreiðanlegt, faglegt og úrræðagott og þjónustunni má treysta 100%.“
Aðalbjörg J. Finnbogadóttir
Sviðstjóri fagsviðs
Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
|
 |
|
|
„Landhelgisgæsla Íslands hefur átt gott og farsælt samstarf við Congress við skipulagningu á alþjóðlegum ráðstefnum.
Þjónusta Congress og fulltrúa þeirra var í alla staði fagleg og óaðfinnanleg.“
Georg Kr. Lárusson
Forstjóri Landhelgisgæslu Íslands
|
 |
|
|
|
„Congress Reykjavík hefur aðstoðað okkur við að skipuleggja norrænar ráðstefnur.
Samstarfið gekk eins og best verður á kosið og ég get óhikað mælt með þjónustu þeirra..“
Anna G. Björnsdóttir
Sviðsstjóri þróunar- og alþjóðasviðs
Samband íslenskra sveitarfélag
|
 |
|
|
„Við höfum um langt skeið átt gott samstarf við Congress Reykjavík vegna námstefnu og fundahalda félagsins. Á hverju hausti heldur félagið 200 manna námstefnu og í tengslum við hana ársfund/aðalfund. Mismunandi er hvar á landinu þessi viðburður er hverju sinni.
Congress Reykjavík hefur um áraraðir haldið utan um framkvæmd þessa viðburða, séð um skráningu, samninga við hótel vegna fundastaða, veitinga og gistingar svo og allt fjárhaldslegt uppgjör.
Samstarfið hefur einkennst af góðri þjónustulund og trausti af hálfu starfsfólks Congress sem lýsir sér best í því að aldrei hefur komið til tals að breyta fyrirkomulagi síðasta áratugar.
Með ósk um áframhaldandi gott samstarf.“
Jón Ingi Einarsson
Framkvæmdastjóri
Skólastjórafélags Íslands
|
 |
|
|
|
„Á vormánuðum 2008 hélt Höfuðborgarstofa árlega ráðstefnu evrópudeildar hátíðasamtakanna IFEA (International Festivals and Events Association).
Þar sem vel flestir gestir ráðstefnunnar eru vanir viðburðahaldarar var mikilvægt að ráðstefnan væri líka viðburður í sjálfu sér, óvænt, skemmtileg og umfram allt fagmannlega skipulögð og framkvæmd.
Til að vinna að undirbúningnum með okkur sem og framkvæmdina sjálfa fengum við Congress Reykjavík.
Starfsfólk CR setti sig undireins inn í þær hugmyndir sem lágu fyrir, skildu hvaða upplifun við vildum veita okkar ráðstefnu-gestum og hjálpaði okkur að gera þær hugmyndir að veruleika. Öll verkefni nálgaðist starfsfólk CR af fagmennsku og jákvæðni og leysti óvæntar uppákomur fumlaust svo að þær náðu aldrei að verða vandamál.
Þeirra utanumhald gerði það að verkum að við gátum notið ráðstefnunnar áhyggjulaus, fullviss um að gestirnir okkar færu ánægðir heim.“
Sif Gunnarsdóttir
Forstöðumaður Höfuðborgarstofu.
|
 |
|
|
„Ég hef unnið með Congress Reykjavík að mörgum verkefnum. Þjónustulund, fagleg vinnubrögð og elskulegt viðmót er að mínu mati einkennandi fyrir fyrirtækið.
Einnig sá hæfileiki að aðlaga sig að mismunandi kröfum kúnnanna og geta með stuttum fyrirvara fundið frábæra lausn á ófyrirséðum vandamálum.“
Elín Flygenring
Sendiherra Íslands í Finnlandi og fyrrverandi Protocollstjóri Utanríkisráðuneytisins
|
.gif) |
|
|
|
„Fagmennska og ljúfmennska einkenndu öll störf þeirra hjá Congress Reykjavík.
Alltaf fór ég glaðari af þeirra fundi. Vanda-málin leystust jafnan fyrirhafnarlítið í þeirra höndum.“
Þóra Steingrímsdóttir
Forseti 36. þings norrænna fæðinga- og kvensjúkdómalækna, NFOG 2008
|
 |
|
|
„Haustið 2008 leituðum við til Congress um undirbúning og skipulag norrænnar ráðstefnu á háskólastigi- NUAS.
Ráðstefnan var haldin í Háskóla Íslands í nóvember 2009.
Undirbúningur, skipulag og framkvæmd var eins og best verður á kosið og má lýsa starfi Congress á eftirfarandi hátt.
Fagmennska
Mikil þekking á ráðstefnuhaldi
Gott skipulag
Áreiðanleiki
Sveigjanleiki
Færni til að takast á við hið óvænta
Mikil og góð persónuleg þjónusta
Við gefum Congress okkar bestu meðmæli."
Jónína Kárdal
Deildarstjóri Náms- og starfsráðgjafar
Háskóla Íslands
Ásdís Guðmundsdóttir
Kennslustjóri, Hugvísindasviði,
Háskóla Íslands
|
 |
|
|
|
Ferðamálastofa hélt Vestnorden Travel Mart 2008 í samvinnu við Congress Reykjavík.
Nýir aðilar unnu að undirbúningi kaupstefnunnar fyrir hönd Ferðamálastofu og var afar gott að geta treyst á reynslu og fagmennsku Congress Reykjavík í þessum efnum.
Ólöf Ýrr Atladóttir
Ferðamálastjóri
|
 |
|
 |
|
Congress Reykjavik, hefur séð um fjölda sumarskóla, og ráðstefna sem ég hef staðið að í gegnum tíðina. Árið 2008 sáu þær um stærstu alþjóðlegu ráðstefnuna sem hér hefur verið haldin: Aðalfund alþjóða eldfjallafræðisambandsins - IAVCEI (International Association of Volcanology and Chemistry of the Earth's Interior)
Á fundinum voru yfir 1000 manns þarf að um 900 erlendir.
Með hjálp Congress Reykjavík varð þessi fundur einn best heppnaði fundur sambandsins.
Dr. Armann Hoskuldsson
Institute of Earth Sciences
University of Iceland
Jarðvísindastofnun Háskólans
|
 |
|
|
„Árið 2007 hélt Verkefnastjórnunarfélag Íslands alþjóðlega ráðstefnu um verkefnastjórnun, Nordnet 2007 - Projects under risk. Efnt var til ráðstefnunnar fyrir hönd norrænu verkefnastjórnunarfélaganna, Nordnet. Ráðstefnan var haldin dagana , 26. - 28. september á Hótel Nordica. Ráðstefnugestir voru um 180, íslenskir og erlendir. Fyrirlesarar voru 27 þar af ríflega helmingur sem kom erlendis frá.
Við upphaf undirbúnings ráðstefnunnar árið 2005 var ákveðið að fá Congress Reykjavík til samstarfs við tiltölulega fámennan verkefnishóp frá félaginu. Þátttaka Congress reyndist ráðstefnunni og verkefninu öllu sérlega heilladrjúg. Verkefnishópur gat einbeitt sér að markmiði ráðstefnunnar og efnisþáttum en Congress sá raunar um allt hitt, fjármál, bókhald, skipulag, ferðatilhögun, bókanir og öll þau ótölulegu smáatriði sem tínast til við tiltölulega umfangsmikið og flókið verkefni sem alþjóðleg ráðstefna er. Starfsfólks Congress var auk þess óþrjótandi og ómentanlegur viskubrunnur um allt sem við kemur ráðstefnuhaldi og atburðastjórnun. Síðast en ekki síst var samstarfið við starfsfólk Congress framúrskarandi gott, viðhorf þeirra, viðmót og fagmennska einstök.
Fyrir bragðið gekk ráðstefna Nordnet 2007 mjög vel. Þátttakendur, fyrirlesarar og verkefnishópur voru ánægðir með árangursríkt verkefni sem Congress Reykjavík átti mjög stóran þátt í.
Ég gef Congress Reykjavík mín bestu meðmæli.“
Guðmundur Hannesson
Forstöðumaður Ráðgjafarsviðs
Ríkiskaupa og verkefnastjóri Nordnet 2007
|
 |
|
„Haustið 2008 leituðum við til Congress Reykjavík vegna undirbúnings og skipulags norrænnar vísindaráðstefnu um öldrunarmál sem halda átti vorið 2010 (20 NKG). Þetta var óvanalega erfiður tími til að skipuleggja stóra ráðstefnu vegna ástandsins í efnahagsmálum. Fljótlega varð ljóst að skipta þurfti um ráðstefnustað því tónlistarhúsið yrði ekki tilbúið. Þegar nær dró og erlendir, tilvonandi ráðstefnugestir voru að skipuleggja för sína hingað skall á öskuský í háloftum Evrópu með sínum vel þekktu afleiðingum á ferðir og ráðstefnuhald.
Í gegnum þessar þrengingar nutum við leiðsagnar starfsfólks Congress og var hvergi hvikað frá settu marki.
Ráðstefnan var haldin í á Hilton Nordica með þátttöku 525 ráðstefnugesta. Haldin voru tæplega 200 erindi og sýnd liðlega 100 spjöld á spjaldasýningu auk þess sem ýmsir aukafundir voru skipulagðir af Congress. Á fundi að lokinni ráðstefnu var tekið út hvernig til hefði tekist og þar lauk gagnrýnin sveit norrænna vísindamanna lofsorði á allt skipulag.
Þjónusta Congress einkennist af mikilli fagmennsku, áreiðanleika og nauðsynlegum sveigjanleika. Starfsfólkið hefur einnig mikla færni til að takast á við óvænt atriði stór og smá og á það reyndi óvanalega mikið í þetta skipti.
Það er því auðvelt að gefa Congress okkar bestu meðmæli.“
Jón Snædal,
forseti 20 NKG og Nordisk Gerontologisk Forening
|
 |
|
„Félag barnahjartalækna fékk Congress Reykjavík til að skipuleggja og framkvæma fund norrænna barnahjartalækna (XL Nordic Pediatric Cardiology Meeting) sem haldinn var á Hilton Reykjavik Nordica 23.-25. september 2010.
Fundurinn var „strålande success“ hvergi veikur punktur, kvöldverðarboðið og staðsetningin vakti mikla lukku.
Hér með er komið á framfæri þakklæti til allra sem að málinu komu, framkvæmdin hefði ekki gengið án hjálpar Congress Reykjavík“
Hróðmar Helgason,
Barnahjartalæknir,
Barnaspítala Hringsins
|
| |
|
|
|