RÁÐSTEFNUÞJÓNUSTA
Metnaður okkar felst í að viðskiptavinir okkar geti einbeitt sér að faglegum þætti verkefnisins á meðan við sinnum þeim verklega. Við leggjum áherslu á gott samstarf við okkar viðskiptavini og samstarfsaðila og höfum að leiðarljósi að þau verkefni sem við komum að séu vel heppnuð og ógleymanleg.
Hér að neðan má sjá þau atriði sem við tökum að okkur fyrir viðskiptavini. Hafa ber í huga að listinn er alls ekki tæmandi. Við leggjum allt kapp á að leysa þau mál sem upp koma af fagmennsku og öryggi til að tryggja árangursríkan viðburð, þér í hag. Sameinum kraftana - þannig náum við árangri.
| Alhliða skipulagning ráðstefna, þinga og funda |
| |
• |
Bókun á ráðstefnu- og fundaraðstöðu |
| |
• |
Umsjón með veitingum |
| |
• |
Umsjón með gerð upplýsinga- og kynningargagna |
| |
• |
Uppsetning heimasíðu fyrir viðburðinn og viðhald hennar |
| |
• |
Skráningar þátttakenda og aðstoð við dreifingu efnis til þeirra |
| |
• |
Efnisöflun frá fyrirlesurum og umsjón útdrátta (abstrakta) |
| |
• |
Uppsetning fyrirtækja- og vörusýninga í tengslum við viðburðinn |
| |
• |
Móttökur, lokahóf og aðrar skemmtanir |
| |
• |
Samskipti við þjónustuaðila |
| |
|
|
| Almenn ferðaþjónusta fyrir þátttakendur og samferðafólk |
| |
• |
Bókun gistirýmis |
| |
• |
Ferðir - skoðunarferðir |
| |
• |
Bílaleigubílar |
| |
|
|
| Fjármálastjórn: |
| |
• |
Kostnaðar- / fjárhagsáætlun |
| |
• |
Þarfagreining |
| |
• |
Útvegun tilboða |
| |
• |
Samningagerð við birgja |
| |
• |
Greiðsla reikninga |
| |
• |
Uppgjör við þátttakendur, birgja og sýnendur |
| |
|
Í mörg horn er að líta við ráðstefnuskipulagningu og ótalmörg atriði til viðbótar sem huga þarf að. Við getum séð um þau flest öll fyrir þig svo þú getir einbeitt þér að faglegum hluta viðburðarins. Hafðu samband við okkur til að fá nánari upplýsingar um þá verkþætti sem við tökum að okkur.