RÁÐSTEFNUKERFI
Til að allt gangi samkvæmt áætlun er nauðsynlegt að nota örugg kerfi og sannreynd ferli. Congress Reykjavík var fyrst íslenskra fyrirtækja til að taka í notkun Eventure ráðstefnukerfið. Kerfið er eitt það fullkomnasta sem völ er á í dag, bæði hvað varðar skráningu þátttakenda og útdrátta (abstrakta). Kerfið tryggir hnökralausan, áhyggjulausan og árangursríkan fund eða ráðstefnu.
Skráningarkerfið
Skráningarkerfið er einfalt og notendavænt og fer alfarið fram á netinu. Það heldur meðal annars á öruggan hátt utan um vefskráningar hópa og einstaklinga, gistibókanir og ferðir. Það sparar tíma og fyrirhöfn, tryggir öryggi skráninga og eykur þar með fagmennsku og trúverðugleika ráðstefnuhaldarans.
Abstraktkerfið
Auðveldar söfnun og umsýslu abstrakta til mikilla muna. Skráning, yfirlestur, mat, flokkun, niðurröðun funda, dagskrár- og skýrslugerð er leikur einn með hjálp kerfisins og fer alfarið fram á netinu. Gögn eru tilbúin í tíma sem tryggir faglega framsetningu efnis.
Saman mynda kerfin öfluga heild
Markvisst utanumhald um þátttakendur og skipulögð vinna við útdrætti auðveldar undirbúning og framkvæmd viðburðarins. Áhyggjuefnin eru færri, ánægja ráðstefnugesta eykst og jafnframt árangur viðburðarins. Sameinum kraftana - þannig náum við árangri!
