FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA
Er opnunarhátið í vændum, kynning eða boð fyrir viðskiptavini þar sem ný vara er sett á markað? Ertu að skipuleggja móttöku eða sýningu? Við tökum að okkur verkefnastjórn á viðburðum af ýmsu tagi svo þú getir varið þínum tíma með þeim sem skipta máli, starfsmönnum og/eða viðskiptavinum.
Fyrirtækjaþjónusta
Við tökum að okkur hvers kyns viðburðastjórnun fyrir fyrirtæki. Svo sem móttökur fyrir viðskiptavini, opnunarhátíðir, ársfundi o.s.frv. Við sjáum um verkefnastjórnun og framkvæmd frá a – ö og spörum þér þannig tíma og áhyggjur af smáatriðunum sem skapa stóru heildarmyndina. Fagmennska þín verður fyrir vikið meiri, atburðurinn áhrifaríkari og hlutaðeigandi ánægðari. Leitaðu til okkar, ekkert verkefni er of stórt eða of lítið.
Sýningar
Góð uppsetning og framúrskarandi framkvæmd kynninga og vörusýninga skiptir höfuðmáli til að slíkir atburðir skili árangri. Láttu okkur aðstoða þig við að skapa faglega og trausta ímynd af þínu fyrirtæki. Við höfum reynslu af uppsetningu á stórum sem smáum vörusýningum, hvort sem þær eru í tenglsum við ráðstefnur eða ekki. Fagleg sýning eða kynning styrkir ímynd fyrirtækis þíns. Það er því til mikils að vinna. Einbeittu þér að viðskiptavinum þínum og við sjáum um praktísku atriðin.
Hvataferðir
Jafnframt tökum við að okkur skipulagningu hvata- og skemmtiferða fyrir stærri og smærri hópa ráðstefnugesta. Við leggjum metnað okkar í að höfða til þarfa hvers hóps og því eru engar tvær ferðir eins. Við gefum hugmyndafluginu lausan taum svo hópurinn þinn geti notið dagsins og eflst fyrir vikið. Láttu okkur um að skipuleggja ógleymanlega ferð fyrir hópinn hvort sem hún er innan borgarmarkanna eða uppi á jökli.