Congress Reykjavík var stofnað 20. júlí árið 2000. Eigandi þess er Lára B. Pétursdóttir. Starfsemi fyrirtækisins byggir á skipulagningu ráðstefna, funda og þinga hvort sem um er að ræða stóra eða smáa viðburði, erlenda eða innlenda. Markmið fyrirtækisins er að veita fagmannlega og góða þjónustu, með því að stýra og halda utan um þá verkþætti, sem skapa heildina að velheppnuðum viðburði.

Í upphafi voru starfsmenn fyrirtækisins þrír en nú starfa þar 5 manns, sem samanlagt hafa áratuga langa reynslu við skipulagningu viðburða. Umsvif fyrirtækisins hafa aukist jafnt og þétt frá stofnun og var fjöldi ráðstefnugesta árið 2008 um sjö þúsund.